|
|
|
Ljósaskipti ehf. framleiðir hvers kyns efni á myndbandi og ber þar helst að nefna heimildarmyndir gerðar fyrir RÚV í þáttaröð á vegum EBU/Eurovision er nefnist Children Documentary Series. Þessar myndir hefur fyrirtækið framleitt í samvinnu við Lindu Ásgeirsdóttur árlega undanfarin þrjú ár og fjórða myndin er í vinnslu. Allt að 20 sjónvarpsstöðvar um alla Evrópu taka þátt á hverju ári og eru myndirnar sýndar á þeim flestum.
Einnig hefur fyrirtækið gert í samvinnu við Lindu, þættina Krakkar á ferð og flugi sem sýndir hafa verið í Sjónvarpinu við góðan orðstír. |
Ljósaskipti ehf. Melgerði 2, 200 Kópavogur, sími 567-9300, fax 567-9303, twilight@twilight.is